26.02.2016 18:36
Námskeið 26-27 febrúar 2016
Fyrsta námskeiðið í smíði trébáta á árinu
eru nú (26-27 febrúar 2016) haldið húsnæði Iðu fræðsluseturs (idan.is) að
Vatnagörðum 20 í Reykjavík en námskeiðið er haldið í samvinnu Iðu fræðsluseturs
og FÁBBR. Þáttakendur að þessu sinni eru 8. Kennarar eru sem fyrr Hafliði
Aðalsteinsson skipasmíðameistari og Eggert Björnsson bátasmiður.
Verkefnin að þessu sinni er kennsla í
viðgerð á gömlum bát og frágangur á nýjum bát.
Eldri báturinn er bátur sem Valdimar
Ólafsson (1906-1939) í Hvallátrum (afabróðir Hafliða) smíðaði árið 1934 fyrir
Júlíus Sigurðsson(1876-1961) á Litlanesi á Barðaströnd og var báturinn
yfirleitt kallaður Litlanesbáturinn og var hlunnindabátur á Litlanesi í áratugi.
Hafliði er að vinna að endurbyggingu bátsins fyrir Hilmi Bjarnason stjórnarmann
í FÁBBR.
Sigurjón Árnason (1923-2010) skipasmiður í
Flatey, afi Hilmis, smíðaði á árunum um og eftir 1950 fjóra báta eftir
Litlanesbátnum; Andvara, Bjarma, Hring og Múlabátinn. Þessir bátar eru allir
til í dag og eru allir nema Andvari í mjög góðu ástandi.
Myndir frá námskeiðinu eru í myndaalbúmi. http://www.batasmidi.is/photoalbums/277391/
26.12.2015 18:03
Vélasafnið - fróðleikur

Eins og fram koma hér á síðunni í september þá bættist vélasafn Þórhalls Matthíassonar frá Litlabæ í Skötufirði við Báta- og hlunnindasýninguna á
Reykhólum.
Nú hefur safnið verið skrá eftir upplýsingum frá Þórhalli.
Ýmislegt fróðlegt kemur í ljós við skráningu safnsins.
Vélarnar eru alls 102 af 42 tegundum og eru framleiddar í 8
löndum. Ekki er vitað um aldur allra vélanna en af þeim sem vitað er um er elsta
vélin frá 1926 og sú yngsta frá 2001. Notkun vélanna hefur verið mjög
fjölbreytt en um 80% eru báta- eða ljósavélar. Vélarnar koma víða að, rúmlega
helmingur er af Norðurlandi og um þriðjungur af Vestjörðum, Breiðafirði og
Vesturlandi.
Í haust var unnið að því að gera húsnæði tilbúið fyrir
sýninguna og gekk það vel og í vor verður safnið sett upp ásamt merkingum.
Við viljum hvetja alla áhugamenn að gera sér ferð á Reykhóla
næsta sumar og skoða þetta stór merka safn.
Hér á eftir fylgja nokkrar töflur fyrir áhugasama að skoða
betur.
Fjöldi véla og framleiðsluland | ||
10 | Sabb | norsk |
10 | Solo | sænsk |
8 | Albin | sænsk |
7 | Briggs & Stratton | usa |
7 | Stuart | ensk |
6 | Volvo Penta | sænsk |
4 | Skandia | sænsk |
4 | Hatz | þýsk |
3 | Bukh | dönsk |
3 | Göta | sænsk |
3 | Sleipner | norsk |
2 | Lister | ensk |
2 | Marna | norsk |
2 | Penta Göteborg | sænsk |
2 | Petter | ensk |
2 | Wisconsin | usa |
2 | VM | Ítölsk |
1 | AB Electrolux | sænsk |
1 | Bolinder | sænsk |
1 | Drott | sænsk |
1 | Ellwe | sænsk |
1 | Faryman | þýsk |
1 | FM | norsk |
1 | Ford | usa |
1 | Ford Mermid | ensk |
1 | Gardner | þýsk |
1 | Göta eða Solo | sænsk |
1 | Kröve | norsk |
1 | Kvikk | norsk |
1 | Köhler | usa |
1 | Lombardini | ítölsk |
1 | Neptune | usa |
1 | Q.M. | norsk |
1 | Royal Enfield | ensk |
1 | Röston | ensk |
1 | Skrúfa frá Göta vél | sænsk |
1 | Startmótor | rússneskur |
1 | Stord | norsk |
1 | Universal | usa |
1 | Victor | ensk |
1 | Villers | ensk |
1 | Witte | usa |
102 | 42 |
Uppruni véla | |
Norðurland | 57 |
Vestfirðir | 25 |
Breiðafjörður | 7 |
Vesturland | 6 |
Austfirðir | 5 |
Suðurland | 2 |
102 |
Bátavél | 69 |
Dæluvél | 1 |
Fjölnotavél | 13 |
Kranavél | 1 |
Ljósavél | 9 |
Rafstöð | 1 |
Sláttuvél | 1 |
Skrúfa | 1 |
Spil | 1 |
Startvél | 1 |
Súgþurrkunarvél | 2 |
Utanborðsvél | 2 |
Fjölnotavélar t.d. | |
- Mjaltavélar | |
- Hrærivélar | |
- Sláttuvélar | |
- o.fl. | |
102 |
18.10.2015 14:31
Námskeið í smíði súðbyrðings

04.10.2015 10:33
Draupnir BA kominn á Reykhóla

Á föstudaginn 2 október 2015 var vélbáturinn Draupnir fluttur
frá Safnasvæðinu á Akranesi, þar sem hann hefur verið geymdur s.l. 20 ár, til dvalar
hjá Bátasafni Breiðafjarðar á Reykhólum.
Draupnir var smíðaður af Aðalsteini Eyjólfi Aðalsteinssyni
(1923-2014) skipasmið í Hvallátrum á Breiðafirði og var stærsti bátur sem
Aðalsteinn smíðaði, sjósettur árið 1960.
Draupnir er 10,67 m langur, 3,55 m á breidd og 1,52 m djúpur
og 10,41 brl. Upphaflega var í honum 20 hp Lister vél en síðar var sett í hann
50 hp Perkings vél og er hún í honum í dag.
Aðalsteinn smíðaði bátinn fyrir sig og var hann heimils farartæki
fyrir Hvallátur og notaður til að flytja fólk og varning.
Aðalsteinn smíðaði einnig árið 1962, Farsæl fyrir nágranna
sinn Nikulás Jensson í Svefneyjum. Farsæll er aðeins minni eða rúmar 7 brl.
Draupnir og Farsæll bera smíðakunnáttu Aðalsteins gott merki
og voru lang stærstir og flottastir eyjabátar á sinni tíð.
Draupni var búinn staður við hlið Farsæls við hús Báta- og
Hlunnindasýningarinnar á Reykhólum. Þar hvílir einnig flutningaprammi sem Aðalsteinn
smíðaði árið 1958.
Myndir af flutningunum eru í myndaalbúmum.
29.09.2015 09:01
Sindri afhentur Bátasafni Breiðafjarðar
Sindri afhentur Bátasafni Breiðafjarðar til eignar og varðveislu.
Sindri var smíðaður árið 1936 af
Valdimar Ólafssyni í Hvallátrum fyrir Jón Þórðarson og Snæbjörn Jónsson á Stað
á Reykjanesi. Á þessum tíma var tvíbýli á Stað en síðar(1949) byggði Jón nýbýlið
Árbæ .
Sindri er smíðaður úr eik og furu
og skráður 2,5 brl. Var upphaflega með 5 ha Skandia vél, árið 1946 var sett í
bátinn 8 ha. Skandia vél, 1983 var sett í bátinn 8 ha Sabb vél og 1995 10 ha
Sabb vél sem er í bátnum í dag.
Sindri var notaður af Staðar og
Árbæjar bændum í áratugi við hlunnindanytjar og flutninga á vörum og fólki.
Sindri hefur verið geymdur í
uppsátri á Vesturnesi við höfnina á Stað.
Árið 1962 kaupir Guðmundur
Theódórsson á Laugalandi við Þorskafjörð bátinn og notar hann við
hlunnindanytjar o.fl. Árið 1990 gerði
Guðmundur bátinn upp og hefur síðan haldið honum mjög vel við.
Á Bátadögum 2015 sigldi Guðmundur
ásamt gestum á Sindra í hópi báta í blíðu veðri. Að því loknu afhenti Guðmundur
Bátasafninu Sindra til eignar og varðveislu.
Sindri var hafður til sýnis á
Báta- og hlunnindasýningunn fram á haust en nú hefur verið gengið frá honum til
vetrardvalar í naustinu þar sem hann hefur verið geymdur undanfarin 80 ár.
Fleiri myndir af Sindra eru í
myndaalbúmum.
20.09.2015 12:00
Bátavélasafn Þórhalls Matthíassonar verður hluti af Báta- og hlunnindasýningunni á Reykhólum
Þórhallur Matthíasson sem er Vestfirðingur að uppruna, alinn upp í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi, og búsettur á Akureyri hefur safnað og gert upp bátavélar í tugir ára. Árið 2007 opnaði Þórhallur sýningu á safninu á Akureyri.
Að undanförnu hefur Þórhallur verið að leita að
framtíðarstað fyrir safn sitt. Fyrir stuttu komust á viðræður forsvarsmanna Bátasafns Breiðafjarðar og Þórhalls um hvort möguleiki væri á að safn Þórhalls myndi geta átt sér
framtíðarstað á Reykhólum.
Eftir að við höfðum ráðfært okkur við félaga okkar hjá Báta-
og hlunnindasýningunni ehf. (BogH) var ákveðið að þiggja þessa rausnarlegu gjöf
Þórhalls og búa henni veglegan stað í kjallara húsnæðis BogH.
Safnið var síðan í framhaldinu flutt frá Akureyri í vikunni
(16-17 sept.) til Reykhóla og þurfti tvo stóra flutningabíla undir safnið sem
telur um 150 vélar og annan búnað sem tengist vélum í bátum. Margar vélanna eru
gangfærar. Safninu var komið fyrir til bráðabirgða innan um báta og aðra
sýningarmuni í BogH.
Veturinn verður notaður til að undirbúa húsnæðið, leggja í gólf,
mála og koma rafmagni og öðru í gott horf.
Næst vor verður sýningin svo sett upp í samvinnu við Þórhall
og verður hún með hans nafni. Þórhallur hefur haldið skrá yfir alla munina og
er saga þeirra flestar einnig aðgengileg.
Það má því segja að næst vor samanstandi BogH í raun af 3 sýningum; Bátasafn (súðbyrðinga), Hlunnindasafn og
Vélasafn. Það er ósk okkar og von að þetta auki aðsókn að safninu.
Myndir af sýningu Þórhalls á Akureyri og af flutningunum í
vikunni má sjá í myndaalbúmi.
13.07.2015 19:11
Að loknum Bátadögum 2015
Bátadagar
2015 tókust með miklum ágætum og átti gott veður sinn þátt í því.
Alls tóku sex
bátar þátt að þessu sinni, Baldur, Bjargfýlingur, Gustur, Kári, Ólafur og Sindri og þáttakendur voru um 25 talsins.
Við sem að
þessari hátíð súðbyrðingsins stöndum hefðum kosið að fleiri hefðu komið með
báta sína og siglt með okkur en það er töluverð fyrirhöfn að koma með bátana og
við höfum skilning á því að svo varð ekki að þessu sinni. Vonandi verða fleiri
næst.
Við hjá FÁBBR og Báta- og hlunnindasýningunni viljum þakka öllum þeim sem hjálpuð okkur að gera þessa hátíð jafn góða og raun bar vitni.
Mikið hefur birst af myndum á vefnum og umfjöllun um Bátadagana og eru krækjur á það hér að neðan.
Reykhólavefurinn:
http://reykholar.is/frettir/Einstok_blida_a_Batadogum_2015_-_urmull_mynda/
http://reykholar.is/myndasofn/myndir/179/
Báta- og hlunnindasýningin:
https://www.facebook.com/permalink.php?story_fbid=666927983441856&id=313189945482330
Goddur:
Haukur Sigvaldason:
https://www.facebook.com/shaukur/media_set?set=a.10205641638138283.1073742002.1173871807&type=3
01.07.2015 11:21
Gott veðurútlit á Bátadögum
13.04.2015 08:13
Bátadagar á Breiðafirði 3 - 5 júlí 2015
Félag áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarðar á
Reykhólum (FÁBBR) í samvinnu við Báta- og hlunnindasýninguna á Reykhólum (BogH),
gengst nú fyrir bátahátíð súðbyrtra trébáta á Breiðafirði í áttunda sinn þann 4
júlí nk. Eru eigendur trébáta hvattir til að mæta með báta sína.
Nú er komið að því að heimsækja fjögur nes; Skálmarnes, Svínanes og Bæjarnes í Múlasveit og Skálanes í Gufudalssveit og þaðan síðan að lokum haldið að Stað á Reykjanesi þaðan sem ferðin hefst.
Saga þessara sveita er samofin sögu byggðar í Breiðafjaðareyjum. Eyjabændur versluðu eldivið (hrís og mó) og fengu að flytja fé til beitar á afréttum í Múla- og Gufudalssveita. Bændur í landi fengu báta frá skipasmiðum í eyjunum og versluðu við kaupmenn í Flatey og sóttu þangað læknisþjónustu o.fl. Flóabáturinn Konráð sigldi áætlunarferðir úr Flatey í Múlasveit.
Enginn bær í Múlasveit er lengur í byggð en hlunnindi eru víða nytjuð. Árið 1986 var síðast skráður íbúi í sveitinni en hún var síðar sameinuð Reykhólahreppi.
Með í för verða menn sem lifðu þá tíma er byggð var bæði í eyjunum og Múlasveit og munu miðla þekkingu sinn í ferðinni.
Föstudagur
3. Júlí. Safnast saman.
Ráðgert er að þáttakendur safnast saman á Reykhólum á föstudaginn 3 júlí. Flóð er um kl. 20 um kvöldið og þá er gott að setja bátana niður við höfnina á Stað á Reykjanesi, þaðan sem farið verður í siglinguna daginn eftir.
Laugardagur
4. Júlí..
Á laugardagsmorgun verður haldið frá Stað um kl. 10 en þá er aðeins farið að falla út og við höfum því fallið með okkur. Siglt sem leið liggur að Klauf á Skálmarnesi. Búið var í Skámarnesmúla til 1975. Eftir að hafa skoðað Skálmarnesið verður siglt til að Svínanesi þar sem búið var til 1959. Í litli koti Svínanesseli dvaldi Halldór Kiljan Laxness um tíma þegar hann var að safna efni í Sjálfstætt fólk. Þar voru búskaparhættir líkir því sem verið hafði um aldir og þeim lýsir hann vel í sögunni. Því næst verður siglt yfir að Bæjarnesi en þar var búið til 1962. Frá Bæjarnesi siglum við að Skálanesi þar sem lengi var rekið kaupfélag og bensínafgreiðsla. Á Skálanesi búa hjónin Sveinn Berg Hallgrímsson og Andrea Björnsdóttir. Frá Skálanesi munum við síðan sigla að Stað á Reykjanesi. Háflóð er um kl. 21 um kvöldið þannig að þeir sem vilja geta tekið báta sína upp við ferðalok. Gera má ráð fyrir að ferðin taki um 6-8 klst. Stefnum síðan á sameiginlegt grill um kvöldið.
Að sjálfsögðu ráða aðstæður, sjávarföll og veður, mestu um hvernig siglingarnar verða og áætlunin getur því breyst ef aðstæður krefjast. Siglingin verður undir stjórn manna sem þekkja vel til aðstæðna við Breiðafjörð.
Formaður hvers báts er ábyrgur fyrir því að nauðsynlegur öryggisbúnaður sé fyrir hendi um borð. Allir súðbyrðingar er velkomnir og við viljum hvetja sem flesta til að nýta sér þetta tækifæri til siglingar um þetta fallega umhverfi.
Mjög góð aðstaða fyrir minni báta er á Reykhólum og á Stað og einnig er mjög góð aðstaða fyrir ferðamenn í Reykhólasveit. Sjá nánar á www.visitreykholahreppur.is/. Báta- og hlunnindasýningin verður opin alla dagana. http://visitreykholahreppur.is/page/34165/.
Frekari upplýsingar veita: Harpa Eiríksdóttir, [email protected], s: 8941011 og
Sigurður Bergsveinsson, [email protected],
s: 8939787
19.01.2015 11:15
Námskeið í trébátasmíði

14.11.2014 09:37
Námskeið 31.10-1.11 2014

19.10.2014 17:21
Námskeið á Akureyri 10-11 okt. 2014

17.07.2014 23:06
Bátadagar á Breiðafirði 2014
Eftir vikufrestun vegna veðurs voru
Bátadagar á Breiðafirði haldnir dagana 12. og 13. júlí sl.
Fyrri
hluti laugardagsins var nýttur til að sjósetja og prófa bátana sem margir höfðu
ekki verið hreyfðir frá síðustu Bátadögum fyrir tveim árum. Bjart var í veðri
en nokkuð stíf NA átt. Þegar hálffallið var að um kl. 16 var lagt af stað á 8
bátum undir styrkri leiðsögn heimamanna og siglt um Reykhólaeyjar að Hvalshaushólma
þar sem talið er að Grettir og félagar hafi komið að landi með nautið sem
Grettir bar síðan á bakinu heim að bæ. Þarna eru merki um naust og fleiri
minjar. Síðan var siglt að Nóney sem er afar falleg stuðlabergseyja. Eftir að
hafa skoðað Nóney var ferðinni fram haldið í átt að Miðjanesi og siglt að
Miðjanesey og síðan með landinu um Staðareyjar og endað í höfninni hjá Stað.
Alla leiðina var siglt á mjög grunnu vatni og á fjöru má víða ganga þar sem
siglt var. Vindinn herti heldur og var þetta 10-15 m/sek. Það reyndi því aðeins
á og vélar í tveim bátanna biluðu smávegis. Nánar má sjá leiðina á meðfylgjandi
korti og einnig hér: http://www.sports-tracker.com/#/workout/sberg/627tiv8v6tbue9th
Eftir
að hafa komið bátunum vel fyrir og tekið þá sem biluðu á land var haldið til
Reykhóla. Um kvöldið var sameiginlegt grill í húsnæði Báta- og hlunnindasýningarinnar.
Á sunnudag var komið mun betra veður og um
kl. 14 var siglt á 5 bátum og byrjað á því að sigla inn á Djúpafjörð og hann
skoðaður, síðan var siglt inn í Þorskafjörð að Teigsskógi. Vegna sjávarstöðu
var ekki hægt að fara þar í land og var þá siglt yfir að Laugalandi sem er
eyðijörð við sunnanverðan Þorskafjörð. Húsráðendur tóku á móti bátafólkinu og
sýndu staðhætti en á Laugalandi er heitur hver og er vatn úr honum nýtt til
húshitunar og í sundlaug. Að lokum var siglt til Staðar þar sem bátarnir voru
teknir á land og menn héldu hver til síns heima eftir vel heppnaða Bátadaga.
Myndir frá Bátadögum 2014 má sjá hér: http://www.batasmidi.is/photoalbums/263672/
03.07.2014 17:50
Bátadögum á Breiðafirði frestað um viku
18.06.2014 16:24
Bátadagar 5 og 6 júlí 2014
Félag áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarðar
(FÁBB) í samvinnu við Báta- og hlunnindasýninguna á Reykhólum (BogH), gengst nú
fyrir bátahátíð súðbyrtra trébáta á Breiðafirði í sjötta sinn þann 5 og 6 júlí
nk. Eru eigendur trébáta hvattir til að mæta með báta sína.
Föstudagur 4. Júlí. Safnast saman.
Ráðgert er að þáttakendur safnast saman á
Reykhólum á föstudaginn 4 júlí. Góðar aðstæður til gistingar eru á svæðinu. Ef
aðstæður leyfa verður möguleiki á að þáttakendur grilli saman á
föstudagskvöldinu.
Laugardagur 5. Júlí. Leikur og alvara í og við Reykhólahöfn.
Á laugardagsmorgun verður mætt í
Reykhólahöfn og bátarnir sýndir. Notaðar verða árar, segl og vélar eftir því
sem aðstæður leyfa. Sérstaklega verður hugað að yngstu kynslóðinni og henni
m.a. kennt/sýnt að róa. Kunnáttumenn verða á svæðinu og kynna mismunandi báta og
skýra notkun þeirra við dagleg störf við Breiðafjörð í gegnum aldirnar. Háflóð
er um kl. 12:30 á laugardag. Stefnum á sameiginlegt grill um kvöldið.
Sunnudagur
6. Júlí. Sigling í Þorskafjörð.
Á sunnudaginn 6 júlí verður siglt frá Reykhólahöfn um kl. 10:00 og siglt NV með Reykjanesi um Staðareyjar og inn Þorska-, Gufu- og Djúpafjörð og aðstæður skoðaðar, áð verður við Teigsskóg og hann skoðaður, síðan verður siglt til Staðar á Reykjanesi og líkur ferðinni þar. Gera má ráð fyrir að ferðin taki 6-8 klst. Á meðfylgjandi yfirlitsmynd má sjá fyrirhugaða siglingaleið. Háflóð er um kl. 13:30 á sunnudag
Báta- og hlunnindasýningin verður opin alla dagana. http://visitreykholahreppur.is/page/34165/
Að sjálfsögðu ráða aðstæður, sjávarföll og veður, mestu um hvernig siglingarnar verða og áætlunin getur því breyst ef aðstæður krefjast. Siglingin verður undir stjórn manna sem þekkja vel til aðstæðna við Breiðafjörð. Formaður hvers báts er ábyrgur fyrir því að nauðsynlegur öryggisbúnaður sé fyrir hendi um borð. Allir súðbyrðingar er velkomnir og við viljum hvetja sem flesta til að nýta sér þetta tækifæri til siglingar um þetta fallega umhverfi.
Mjög góð aðstaða fyrir minni báta er á Reykhólum og á Stað og einnig er mjög góð aðstaða fyrir ferðamenn í Reykhólasveit. Sjá nánar á www.visitreykholahreppur.is/
Frekari upplýsingar veita: Harpa Eiríksdóttir, [email protected], s: 894 1011 og Sigurður Bergsveinsson, [email protected], s: 893 9787