Færslur: 2025 Maí

18.05.2025 10:53

Bátadagar á Breiðafirði, 5 júlí 2025.

Bátadagar á Breiðafirði, 5 júlí 2025.

 

Félag áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum (FÁBBR) í samvinnu við Báta- og hlunnindasýninguna á Reykhólum (BogH), gengst nú fyrir bátahátíð á Breiðafirði þann 5 júlí nk.

Allir  bátar (ekki bara súðbyrðingar) eru velkomnir og við viljum hvetja sem flesta til að nýta sér þetta tækifæri til siglingar um þetta fallega umhverfi.

Í ár er gert ráð fyrir þægilegri og stuttri dagleið þannig að litlir bátar ættu ekki að eiga í neinum vandræðum að taka þátt.

Áætlunin er að sigla til Akureyja en Akureyjarbændur, Lilja Gunnarsdóttir og Birgir Bjarnason hafa verið svo vinsamleg að bjóða bátafólkið velkomið að stíga á land og skoða sig um.

Föstudagur 4. Júlí. Safnast saman.

Þáttakendur safnast saman á Reykhólum á föstudaginn 4 júlí. Flóð er um kl. 14:15 og þá er gott að setja bátana niður í höfninni á Reykhólum, þaðan sem farið verður í siglinguna daginn eftir.

Laugardagur 5. Júlí.

Á laugardagsmorgun verður haldið frá Reykhólum um kl. 10. Háflóð á laugardag, er um kl. 15:30. Gera má ráð fyrir að ferðin taki um 6-8 klst.

Akureyjar.

Akureyjar eru eyjaklasi sem liggur um 5 km úti fyrir Skarðsströnd og svipaða vegalengd frá Reykhólum, nokkru utan við mynni Gilsfjarðar. Hér má finna fróðleik um Akureyjar;

https://is.nat.is/akureyjar/

https://is.wikipedia.org/wiki/Akureyjar_(Skar%C3%B0sstr%C3%B6nd), https://skraning.minjastofnun.is/Verkefni_1234.pdf

Á árunum 1907-1927 fengust af Akureyjum að meðaltali 50 kg. af hreinum dún, 30-40 vorkópar og svipuð tala af haustkópum, um 10 þúsund lunda kofur (pysjur) og 18-20 kýrfóður af töðu. Talnaglöggir geta reiknað hvað þetta er að núvirði en ljóst er að Akureyjar voru kostajörð.

Báta- og hlunnindasýninguna á Reykhólum.

Sýningin er opin alla daga frá 1.júní – 31.ágúst.

https://www.ferdalag.is/is/thjonusta/boat-and-gift-of-nature-exhibition-reykholar

Teinæringurinn Egill frá Hvallátrum var fluttur úr Hvallátrum til Reykhóla á síðasta ári sjá hér:  https://batasmidi.is/photoalbums/298267/

Egill verður til sýnis á sýningunni.

Mikill fróðleikur um Egil er í munaskrá safnsins og einnig í fornbátaskrá sjá nánar: https://batasmidi.is/fs/Fornbátaskrá/11%20Bátasafn%20Breiðafjarðar%201%20hluti.pdf

Annað.

Að sjálfsögðu ráða aðstæður, sjávarföll og veður, mestu um hvernig siglingarnar verða og áætlunin getur því breyst ef aðstæður krefjast. Siglingin verður undir stjórn manna sem þekkja vel til aðstæðna við Breiðafjörð.

Formaður hvers báts er ábyrgur fyrir því að nauðsynlegur öryggisbúnaður sé fyrir hendi um borð. Vinsamleg tilmæli eru að allir þáttakendur verði með bjargbelti og að sem flestir bátar séu búnir björgunarbátum.

Björgunarsveitin Heimamenn á Reykhólum, mun verða með í för með öflugan bát okkur til halds og trausts.

Mjög góð aðstaða fyrir minni báta er á Reykhólum og einnig er víða hægt að fá gistingu í Reykhólasveit og Dalabyggð. Tjaldstæði er Reykhólum; https://utilegukortid.is/grettislaug-a-reykholum/

Frekari upplýsingar veita: Hafliði Aðalsteinsson, [email protected] og Sigurður Bergsveinsson, [email protected], s: 893-9787

  • 1