Bátasmíði.is |
|
20.09.2015 12:00Bátavélasafn Þórhalls Matthíassonar verður hluti af Báta- og hlunnindasýningunni á ReykhólumÞórhallur Matthíasson sem er Vestfirðingur að uppruna, alinn upp í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi, og búsettur á Akureyri hefur safnað og gert upp bátavélar í tugir ára. Árið 2007 opnaði Þórhallur sýningu á safninu á Akureyri. Að undanförnu hefur Þórhallur verið að leita að
framtíðarstað fyrir safn sitt. Fyrir stuttu komust á viðræður forsvarsmanna Bátasafns Breiðafjarðar og Þórhalls um hvort möguleiki væri á að safn Þórhalls myndi geta átt sér
framtíðarstað á Reykhólum. Eftir að við höfðum ráðfært okkur við félaga okkar hjá Báta-
og hlunnindasýningunni ehf. (BogH) var ákveðið að þiggja þessa rausnarlegu gjöf
Þórhalls og búa henni veglegan stað í kjallara húsnæðis BogH. Safnið var síðan í framhaldinu flutt frá Akureyri í vikunni
(16-17 sept.) til Reykhóla og þurfti tvo stóra flutningabíla undir safnið sem
telur um 150 vélar og annan búnað sem tengist vélum í bátum. Margar vélanna eru
gangfærar. Safninu var komið fyrir til bráðabirgða innan um báta og aðra
sýningarmuni í BogH. Veturinn verður notaður til að undirbúa húsnæðið, leggja í gólf,
mála og koma rafmagni og öðru í gott horf. Næst vor verður sýningin svo sett upp í samvinnu við Þórhall
og verður hún með hans nafni. Þórhallur hefur haldið skrá yfir alla munina og
er saga þeirra flestar einnig aðgengileg. Það má því segja að næst vor samanstandi BogH í raun af 3 sýningum; Bátasafn (súðbyrðinga), Hlunnindasafn og
Vélasafn. Það er ósk okkar og von að þetta auki aðsókn að safninu. Myndir af sýningu Þórhalls á Akureyri og af flutningunum í
vikunni má sjá í myndaalbúmi. |
Eldra efni
Bátasafn Breiðafjarðar Nafn: Bátasafn BreiðafjarðarTölvupóstfang: [email protected]Staðsetning: ReykhólarTenglar
Flettingar í dag: 146 Gestir í dag: 7 Flettingar í gær: 912 Gestir í gær: 8 Samtals flettingar: 101447 Samtals gestir: 4414 Tölur uppfærðar: 4.7.2022 03:58:35 |
© 2022 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is