20.11.2011 20:51

Flugskýli verður bátasafn

17. December, 2010

  Áhugamannafélag um Bátasafn Breiðarfjarðar 
 hefur nýverið samið um kaup á gamla flugskýlinu 
 á Patreksfjarðarflugvelli. Um er að ræða skemmu 
 sem er ca 550 m2 með mænishæð 7.40m, og er 
 burðavirki úr timbri klætt með stáli. Til stendur að 
 taka skemmuna niður næsta vor og flytja hana til 
 Reykhóla þar sem hún verður reist aftur undir 
 starfsemi safnsins. Þetta viðbótarhúsnæði setur 
 okkur skrefi nær þeim markmiðum sem við 
 höfum sett okkur bæði í tengslum við 
 bátavernd og einnig  mun betri aðstöðu vegna bátadaga sem haldnir eru árlega.

Í haust og vetur hefur verið unnið við nýjan varnargarð við höfnina  hér á Reykhólum og er því verki nú ný lokið. Öll hafnaraðstaða gjörbreyttist til batnaðar og nú sjáum við nýja möguleika hjá okkur þar sem höfninn er orðin örugg fyrir veðri og vindum. Freistandi byggingarlóð fyrir nýju skemmuna okkar er á fyllingu sem gerð var innan við nýja
 
varnargarðinn og við höfum nú þegar fundað með oddvita og byggingarfulltrúa og 
 kynntum þeim okkar hugmyndir um starfsemi 
 í húsinu, með það markmið að fá að nýta  
 fyllinguna og var hugmyndum okkar mjög vel 
 tekið. Áætlað er að í öðrum enda hússins 
 verði smíðaverkstæði þar sem hægt verði að 
 taka inn stærri báta til viðgerðar. þó verður 
 særsti hluti hússins undir sýningarsvæði á 
 bátum sem bíða viðgerðar og þeim sem 
 þegar eru endursmíðaðir. Bátadagar sem eru orðnir árlegur viðburður og fjöldi fólks sækir, fá loks viðunandi aðstöðu og væntum við þess að þeir verði fluttir úr Staðarhöfn í nýju aðstöðuna við Reykhólahöfn það sem öll hafnaraðstaða er að verða til fyrirmyndar. Einnig eru uppi hugmyndir um að tengja starfsemina ferðaþjónustu á svæðinu og bjóða upp að siglingar um náttúruparadísina Breiðarfjörð á gömlum endurgerðum bátum sem eiga sögu á svæðinu og gefa fólki kost á að kynnast aðeins þessum samgöngumáta sem var lífsnauðsynlegur fyrir ábúendur eyjanna.