21.11.2026 11:08
Starfið
Báta- og Hlunnindasýningin á Reykhólum er gluggi að skemmtilegum heimi fugla, báta og náttúrunytja Breiðafjarðar. Sýningin er helguð gjöfum náttúrunnar við Breiðafjörð og nýtingu þeirra, einkum á fyrri tíð en að hluta allt fram á þennan dag
Starfsemin fer fram að Maríutröð 5 á Reykhólum. “Gamla mjólkurbúinu á Reykhólum”.
Sýningin er í eigu Reykhólahrepps, Félagi æðarbænda (Æðarvé) og Bátasafns Breiðafjarðar (FÁBBR).
Sýningin er opin júní, júlí og ágúst ár hvert og einnig hefur húsnæðið verið nýtt til ýmissa viðburða þess utan s.s. Reykhóladaga (https://www.facebook.com/p/Reykh%C3%B3ladagar-100069511972785/?locale=is_IS)
Unnið hefur verið að viðgerð á súðbyrðingi á meðan á sýningunni stendur – lifandi safn. Vekur það mikla athygli gesta.
Bátadagar á Breiðafirði hafa verið haldnir allmörg undanfarin ár - sjá hlekki hér til hliðar undir “Tenglar”
Sýningin rekur upplýsingamiðstöð Reykhólahrepps.
Stjórn félagsins skipa;
- Hafliði Aðalsteinnsson, formaður, fyrir Félag áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarðar (FÁBBR)
- Magnús Sigurgeirsson, meðstjórnandi, fyrir Æðarvé
- Rebekka Eiríksdóttir, meðstjórnandi. fyrir Reykhólahrepp
Framkvæmdastjóri félagsins er Rebekka Eiríksdóttir.
Helstu styrktaraðilar félagsins hafa verið:
Reykhólahreppur, https://www.reykholar.is/
Uppbyggingasjóður Vestfjarða , Vestfjarðastofa, https://www.vestfirdir.is/is
Frumkvæðissjóður - Fjársjóðs fjalla og fjarða - Brothættar byggðir, https://www.byggdastofnun.is/is/verkefni/brothaettar-byggdir
Minjastofnun - Fornminjanefnd, https://www.minjastofnun.is/is/sjodir/fornminjanefnd
Einnig hafa ýmsir íbúar Reykhólhrepps og fyrirtæki s.s. Þörungaverksmiðjan veitt félaginu margvíslega aðstoð í gegnum tíðina.