24.04.2025 15:20
Myndaalbúm 2024
Bætt hefur verið inn nokkrum myndaalbúmum frá starfinu 2024.
- Bragginn 2024, ýmsar myndir.
- Egill fluttur frá Hvallátrum til Reykhóla í ágúst 2024, sjá upplýsingar um bátinn á bls. 18 í munaskrá https://batasmidi.is/files/
- Svanur fluttur frá Kvígindisfirði til Reykhóla, sjá upplýsingar um bátinn á bls. 25 í munaskrá https://batasmidi.is/files/
- Hornarfjarðarbátur. Skekta sem Hafiði smíðaði árið 2024 fyrir Ólaf Björn Þorbjörnsson útgerðarmann á Höfn á Hornafirði.
24.04.2025 09:23
Baskabátur
Hafliði Aðalsteinsson og Einar Jóhann Lárusson, sem smíðuðu „txalupa“, baskneskan léttabát fyrir Baskavinafélagið, kynntu smíðina, 3-5 júní 2024
Xabier Agote forstjóri Albaola fornbátasafnsins (https://albaola.org/en/) sem er sérfræðingur í smíði baskneskra báta var gestur á kynningunni.
Báturinn var síðan fluttur til Djúpavíkur þar sem hann verður til sýnis á Baskasetrinu.
Myndir í myndaalbúmi, https://batasmidi.is/photoalbums/298265/
24.04.2025 06:47
Skýrsla vegna ársins 2023
Bátasafn Breiðafjarðar - FÁBBR
Skýrsla vegna 2023
- Stuðningur við Báta- og hlunnindasýninguna ehf. (BogH) á Reykhólum.
- Þessi þáttur í starfseminni felst í faglegum stuðningi og aðstoð við uppsetningu sýningar á vori og samantekt að hausti. Einnig ýmis aðstoð varðandi húsnæði sýningarinnar. FÁBBR á 33,33% í BogH og Hafliði er formaður félagsins. Aðrir í stjórn eru, Rebekka Eiríksdóttir fyrir Reykhólahrepp og Magnús Sigurgeirsson fyrir Æðarvé.
- Rebekka Eiríksdóttir annaðist stjórn sýningarinnar árið 2023.
- Sigurður B. annast bókhald félagsins og sér um launagreiðslur og styrkumsóknir.
- Endurgerð og lagfæringar á bátum í eigu félagsins.
- Á hverju vori eru sýningarbátar fluttir til, lagaðir og málaðir og snyrtir fyrir sýninguna.
- Hafliði vann að viðgerð á Sindra á sýningartíma BogH.
- Bátadagar
- Bátadagar féllu niður 2023
- Húsnæðismál.
- Patró, óbreytt ástand. Tveir bátar geymdir þar.
- Korngarðar 8 í Reykjavík.
- Faxaflóahafnir hafa lagt félaginu til geymslu- og vinnuaðstöðu að Korngörðum 8 í Sundahöfn. Tveir bátar geymdir þar.
- Reykhólar.
- Báta og hlunnindasýningin að Maríutröð 5. Sex bátar geymdir þar inni og þrír fyrir utan húsið.
- Glerárskógar.
- Hlaða sem félagið hefur á leigu. Þar eru geymdir 14 bátar. Leigusamningur þar er runnin út en félagið fær að vera með bátana þar áfram um tíma.
- Braggi á Reykhólum.
- Sett var stærri hurð í Braggann og í nóvember voru settir þar inn nokkrir bátar.
- Stefnt að því að taka til í Bragganum og flytja þangað bátana sem eru á Glerárskógum.
- Styrkir.
- Sindri. Viðbótarstyrkur til endurgerðar á Sindra að upphæð 500 þús.
- Samstarf o.fl.
- Grindavíkurskip.
Hafliði, Eggert og Einar Jóhann tóku að sér að smíða Grindavíkurskip. Smíðin hófst í byrjun janúar 2023 (11m langt og 3m breitt) og skipið var afhent til Grindavíkur 2.6.2023.
Sjá nánar á Facebook síðu félagsins https://www.facebook.com/profile.php?id=100069341082480
Báturinn fluttur til Reykjavíkur 11.maí 2024 til að forða frá eldgosi.
Komið fyrir við hlið varðskipsins Óðins við Sjóminjasafnið.
Sjá frekari upplýsingar hér: https://ferlir.is/grindavikurskipid/
- Baskavinafélagið. https://baskavinir.is/
Samningur við Hafliða um smíði á dæmigerðum Baskabát (hvalveiði)
HA+EJL heimsóttu Baskaland í október 2023
Ráðgert er að Hafliði smíði líkan af Baskabáti á árinu 2024.
Kópavogi,
Sigurður Bergsveinsson, ritari FÁBBR.
29.08.2024 09:49
Aðalfundur 2024
Aðalfundur Báta- og hlunnindasýningarinnar ehf. verður haldinn í húsakynnum sýningarinnar að, Maríutröð 5b á Reykhólum,
fimmtudaginn 5 september 2024.
Fundurinn hefst kl. 16:00.
Dagskrá:
Almenn aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Í framhaldi af fundinum verður haldinn aðalfundur í Félagi áhugamanna um bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum.
Dagskrá:
Almenn aðalfundarstörf.
Stjórnin.
10.03.2024 10:35
Skýrsla vegna ársins 2022
Félag Áhugamanna um Bátasafn á Reykhólum - FÁBBR
Skýrsla vegna 2022
- Stuðningur við Báta- og hlunnindasýninguna ehf. (BogH)
- Þessi þáttur í starfseminni felst í faglegum stuðningi og aðstoð við uppsetningu sýningar á vori og samantekt að hausti. Einnig ýmis aðstoð varðandi húsnæði sýningarinnar. FÁBBR á 33,33% í BogH og Hafliði er formaður félagsins. Aðrir í stjórn eru, Rebekka Eiríksdóttir fyrir Reykhólahrepp og Magnús Sigurgeirsson fyrir Æðarvé.
- Rebekka Eiríksdóttir annaðist stjórn sýningarinnar árið 2022.
- Sigurður B. annast bókhald félagsins og sér um launagreiðslur og styrkumsóknir.
- Endurgerð og lagfæringar á bátum í eigu félagsins.
- Á hverju vori eru sýningarbátar fluttir til, lagaðir og málaðir og snyrtir fyrir sýninguna.
- Hafliði vann að viðgerð á Sindra á sýningartíma BogH.
- Tveir bátar voru gefnir félaginu á árinu.
- Bjargfýlingur RE 401, nr. 5754. Ólafur Gíslason frá Skáleyjum átti bátinn. Við andlát Ólafs 17.2.2022 færði Gíslína Hanný Einarsdóttir ekkja Ólafs safninu bátinn að gjöf. Bjargfýlingur var smíðaður af Eyjólfi Einarssyni skipasmið í Hafnarfirði. Bjargfýlingur er 6,3 m á lengd, 2 m á breidd og 0.9 m. á dýpt., með 10 ha. Bukh vél.
- Heppinn SH 47, nr. 6457. Einar Karlsson frá Purkey og Pálína Þorvarðardóttir frá Flatey sem búsett hafa verið í Stykkishólmi áttu bátinn alla tíð en hann er smíðaður 1983 af Kristjáni Guðmundssyni (Stjáni slipp) skipasmið í Stykkishólmi. Við andlát Einars 18.6.2022 færði Pálína safninu bátinn að gjöf. Heppinn er 6,8 m á lengd, 2,2 m á breidd og 0.9 m. á dýpt., með 30 ha. BMW vél.
- Námskeiðahald í smíði súðbyrðinga
- Námskeið var haldið á Siglufirði. Hafliði kenndi og Einar Jóhann var til aðstoðar. http://www.sild.is/frettir/batasmidanamskeid-2022
- Bátadagar
- Bátadagar voru haldnir þann 8. júlí 2022 og tókust mjög vel. Siglt um Staðareyjar, Skáleyjalönd og til Hvalláturs. Hér má sjá myndir frá ferðinni. https://batasmidi.is/blog/2022/07/07/batadagar-2022/
- Húsnæðismál.
- Patró, óbreytt ástand.
- Korngarðar 8 í Reykjavík. Faxaflóahafnir hafa lagt félaginu til geymslu- og vinnuaðstöðu að Korngörðum 8 í Sundahöfn.
- Reykhólar. Báta og hlunnindasýningin að Maríutröð 5. Húsið lekur. Hafliði gerði bráðabirgðaviðgerð sem hélt að mestu. Hreppurinn hefur keypti nýtt efni á þakið, ekki er lokið við að setja það á.
- Glerárskógar. Geymslan í hlöðunni er alveg full af bátum. Leiga á Glerárskógum er runnin út en félagið fær að vera með bátana þar áfram um tíma.
- Braggi að Kötlulandi á Reykhólum.Þann 5.9.2022 var gerður samningur við ábúendur á Kötlulandi, Emblu Dögg B. Jóhannsdóttur og Styrmi Gíslason um kaup á bragga sem áður tilheyrði Tilraunastöðinni á Reykhólum. Bragginn sem er rúmlega 300 m2 mun gjörbreyta húsnæðsimálum félagsins.
- Styrkir.
- Félagið fékk enga nýja styrki árið 2022.
- Samstarf o.fl.
- Unnið að viðgerð báts fyrir Baldur Bjarnason á Siglufirði.
- Árni SH. Hafliði, Eggert og Einar Jóhann unnu að viðgerð/endurgerð á Árna SH fyrir Sigurjón í Skipavík. Báturinn var smíðaður hjá Skipavík 1978. Súðbyrtur opinn vélbátur, lengd 7,53 m., breidd 2,36 m. og dýpt. 0.92 m. Báturinn var gerður út frá Nýlendu við Sandgerði og þar slitnaði hann frá legufærum þann 10 janúar 2012. Við fengum bátinn frá Faxaflóahöfnum þar sem hann hafði legið í reiðileysi. Í tengslum við ritun Skipavíkursögu þá ákvað Sigurjón Jónsson aðaleigandi Skipavíkur að láta gera bátinn upp en hann var vægast sagt ill farinn. Hægt var að nýta kjöl, afturstefni, bönd og örfá borð annað þurfti að smíða að nýju.Sett var í bátinn ný 74 ha. Yanmar vél og smíðað vélarhús. Nýtt vökvastýri var einnig sett í bátinn. Báturinn er því sem nýr. Verkinu lauk á haustmánuðum og báturinn var fluttur vestur í Stykkishólm í desember 2022
- Saga Skipavíkur.
- Sigurður lauk við ritun bóka um sögu Skipavikur í Stykkishólmi 1900-2020. Bókin kom út um miðjan desember 2022.Í bókinn er rakin saga skipasmíða í Stykkishólmi á yfir 100 ára tímabili. Fjallað er um smíði 110 báta. Þar er um að ræða allt frá minnstu árabátum upp í fullkomin nútíma fiskiskip. Einnig koma við sögu bátar sem þjónustaðir hafa verið. Alls tekur frásögnin því til um 200 báta, sem borið hafa um 400 nöfn. Fjallað er um mennina, átökin, ósigrana, þrautseigjuna og sigrana, allt til endaloka nýsmíði skipa í Stykkishólmi. Sagt er frá rekstri þeirra fyrirtækja sem við sögu koma og þeim áskorunum sem þau hafa staðið frammi fyrir, sem og aðlögunarhæfni fyrirtækjanna til að takast á við umbreytingu frá skipasmíði til nýrra tækifæra í almennri verktakavinnu og þjónustu. Bókin er því að hluta til iðnsaga Stykkishólms. Bókin er ríkulega skreytt ljósmyndum, í henni eru hátt í 500 myndir. Alls koma um 550 menn við sögu, karlar og konur. Hér er um að ræða fróðlegt rit um sögu, skip og atvinnuhætti.
- Grindavíkurskip.
- Þann 3. Nóv. 2022 var undirritaður samningur við Hollvinasamtökin Áttæringurinn kt. 601022-0520 Vesturbraut 10 Grindavík, um smíði á s.k. Grindavíkurskipi. Báturinn verður eftirlíking af áttæringnum Geir í samræmi við teikningu úr Íslenskum sjávarháttum 2. Verkið hefst í byrjum árs 2023 og verklok eru áætluð í lok maí 2023.
28.06.2023 11:20
Bátadagar 2023 - falla niður
Bátadagar Bátasafns Breiðafjarðar falla niður í ár. Stefnum að Bátadögum að ári.
30.09.2022 12:37
Bátasmíðanámskeið á Sigló
NÁMSKEIÐ: Bátavernd og viðgerð gamalla trébáta
Staðsetning: Gamli Slippurinn, Siglufirði
Tími: 10. – 14. október 2022
Fjöldi: 7 nemendur að hámarki
Verð: Ekkert námskeiðsgjald. Uppihald á eigin kostnað.
Umsóknarfrestur: 30. september 2022
Skráning: [email protected]
Síldarminjasafn Íslands stendur fyrir námskeiði um bátavernd og viðgerð gamalla trébáta vikuna
10. – 14. október nk. Námskeiðið er ætlað iðnnemum, safnmönnum og öðrum áhugamönnum um bátavernd. Hafliði Aðalsteinsson bátasmiður og heiðursiðnaðarmaður ársins 2020 sér um kennslu en Hafliði hefur áralangra reynslu af nýsmíði trébáta sem og viðgerðum gamalla. Sambærileg námskeið hafa farið fram á vegum safnsins síðustu ár og tekist afar vel til.
Í upphafi námskeiðs fer fram leiðsögn um það hvernig ástand gamals báts skal metið og í framhaldinu verður hafist handa við verklega kennslu. Námskeiðið fer fram með þeim hætti að unnið er alla daga, frá mánudegi til föstudags, frá 8:00 – 16:00 síðdegis. Nemendur taki fullan þátt í smíði og annarri vinnu undir handleiðslu kennara.
Unnið verður að viðgerð tveggja báta sem varðveittir eru í Gamla Slippnum sem er kjörinn vettvangur til námskeiðshalds, en um er að ræða verkstæði frá árinu 1934, sem komst í eigu Síldarminjasafnsins árið 2011. Þar er að finna gömul verkfæri og trésmíðavélar til bátasmíða sem nemendur notast við á meðan námskeiðinu stendur. Sem dæmi má nefna stóran amerískan þykktarhefil og bandsög sem eru orðin hundrað ára gömul, og enn í notkun.
Meðal markmiða Síldarminjasafnsins er að standa vörð um forna þekkingu á smíði opinna tréskipa á Íslandi og er námskeiðið skipulagt í samræmi við samning safnsins við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Námskeið sem þessi hafa verið haldin árlega frá árinu 2016 en að auki voru haldin námskeið á árunum 2009 – 2012 og má rekja upphaf þeirra til samstarfsverkefnis Síldarminjasafnsins við Bátaverndarmiðstöðina í Gratangen í Norður Noregi.
Alla jafna hafa námskeiðin verið bæði vel sótt og vel heppnuð. Nemendur fá tækifæri til að vinna með höndunum að viðgerðum súðbyrtra báta og fá með þeim hætti góða tilfinningu fyrir viðfangsefninu. Einn nemanda á bátasmíðanámskeiði haustið 2021 gaf námskeiðinu afar góða umsögn og sagði: "Á þessu námskeiði var unnið með höndunum undir leiðsögn meistara, hans Hafliða, og lærlings hans Einars. Einstöku sinnum sækir maður námskeið eða vinnur skólaverkefni sem kennir manni meira en heil önn í hefðbundnu námi. Þetta var einmitt svoleiðis. Takk kærlega fyrir mig!"
07.07.2022 19:49
Bátadagar 2022
Bátadagar voru haldnir þann 16 júlí og tókust mjög vel.
Myndir frá ferðinni má sjá hér:
https://www.facebook.com/photo/?fbid=10224466270462326&set=pcb.10224466252381874
https://www.facebook.com/shaukur/videos/1677900219262381
https://www.facebook.com/shaukur/videos/2578625045601971
https://www.facebook.com/shaukur/videos/458572449059732
22.06.2022 00:59
Bátadagar 2022
Bátadagar á Breiðafirði 9 júlí 2022
Allar gerðir báta velkomnar
Félag áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum, gengst nú fyrir bátahátíð á Breiðafirði í fimmtánda sinn 9 júlí nk. Núna verður farið til Hvalláturs þar sem rekin var afkastamikil bátasmíðastöð fram á sjöunda áratug síðustu aldar. Þar hefur teinæringurinn Egill verið geymdur allt frá árinu 1940 er hætt var að nota hann og honum lagt. Fróðleik um Egil og fleiri báta er að finna í munaskrá félagsins sem geymd er hér: http://batasmidi.is/files/
Föstudagur 8. júlí. Safnast saman.
Ráðgert er að þáttakendur safnast saman á Reykhólum föstudaginn 8 júlí. Flóð er um kl. 14 og þá er gott að setja bátana niður í höfninni fyrir þá sem koma með bátana landleiðina. Einnig er hægt að sjósetja báta í höfninni við Stað á Reykjanesi.
Laugardagur 9. júlí.
Á laugardagsmorgun verður haldið frá Reykhólum um kl. 9 og áformað er að sigla um s.k. Staðareyjar. Við Stað koma þeir, sem þaðan fara, til móts við þáttakendur (um kl. 10) og síðan er siglt áleiðis um Skáleyjalönd og til Hvalláturs. Staðarhaldarar í Hvallátrum munu kynna þáttakendum það starf sem þar fer fram en þar er stunduð æðarrækt og dúntekja. Einnig mun Egill verða skoðaður og saga hans sögð. Ráðgert er síðan að koma til baka seinni partinn.
|
||||
Svæðið sem siglt verður um.
Að sjálfsögðu ráða aðstæður, sjávarföll og veður, mestu um hvernig siglingin verður og áætlunin getur því breyst ef aðstæður krefjast. Siglingin verður undir stjórn manna sem þekkja vel til aðstæðna við Breiðafjörð.
Formaður hvers báts er ábyrgur fyrir því að nauðsynlegur öryggisbúnaður sé fyrir hendi um borð. Vinsamleg tilmæli eru að þáttakendur verði með bjargbelti og að sem flestir bátar séu búnir björgunarbátum.
Allir bátar eru velkomnir og við viljum hvetja sem flesta til að nýta sér þetta tækifæri til siglingar um þetta fallega umhverfi.
Mjög góð aðstaða fyrir báta er á Reykhólum og einnig er mjög góð aðstaða fyrir ferðamenn í Reykhólasveit. Sjá nánar hér: http://www.reykholar.is/. Báta- og hlunnindasýningin á Reykhólum er opin 11-18 alla daga nema sunnudaga. Finna má fróðleik úr starfi félagsins og myndir frá fyrri bátadögum hér: http://batasmidi.is/
Frekari upplýsingar veita: Hafliði Aðalsteinsson s. 898-3839 og Sigurður Bergsveinsson s. 893-9787
13.10.2021 12:40
Viðurkenningar fyrir störf á sviði sjó- og strandminja
Geir Hólm varð
safnstjóri Sjóminjasafns Austurlands á Eskifirði árið 1982 og starfaði við
safnið til 75 ára aldurs, til ársins 2008 eða í 26 ár. Hann var meðal annars
ötull við söfnun sjóminja á þeim tíma og gerði safnið að einu af merkustu
sjóminjasöfnum landsins. Einnig lagði hann mikið af mörkum til varðveislu
gamalla báta og ýmissa sögulegra mannvirkja á Austurlandi, meðal annars vitans
á Dalatanga og tveggja af elstu húsum Eskifjarðar, Jensenshúss og
Randulfssjóhúss.
Hafliði Aðalsteinsson
hefur verið starfandi tréskipasmiður alla tíð, lærði fyrst hjá föður sínum og nam
síðar við Iðnskólann í Reykjavík. Hann hefur smíðað nokkurn fjölda báta og
einnig og ekki síst unnið að viðgerð og endurgerð eldri báta. Hafliði var stofnfélagi og í forystu fyrir Félag áhugamanna um
Bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum sem sett var á stofn árið 2006. Félagið
byggir á gjöf föður Hafliða, sem gaf þrjá báta og öll sín tæki til safnsins. Þá
hefur Hafliði verið óþreytandi við að efla þekkingu á skipasmíðum og haldið
fjölda námskeiða í skipasmíði í samastarfi við IÐUNA fræðslusetur, m.a. í
Reykjavík og á Reykhólum.
Þór Magnússon var
þjóðminjavörður á árunum 1968-2000. Eitt af þeim sviðum sem hann lét sig miklu
varða var sjóminjar og bátavarðveisla. Var hann þar á margan hátt brautryðjandi
því að Þjóðminjasafnið og byggðasöfnin höfðu sýnt meiri áhuga á sveitamenningu
fyrri tíðar en minjum um sjósókn og siglingar. Í tíð Þórs hófst til að mynda
markviss söfnun á gömlum bátum en þá voru söfnin á Íslandi ekki farin að sinna
því svo heitið gæti. Þá má nefna hlut Þórs í að koma upp Sjóminjasafni Íslands
í Hafnarfirði. Safnið markaði spor á sínum tíma þótt það starfaði í aðeins 15
ár.
Helgi
Máni Sigurðsson formaður SÍS
07.10.2021 10:02
Verndun bátaarfsins
14.06.2021 09:50
Viðgerð á Sindra

Upplagt
fyrir alla áhugasama um verndun bátaarfsins að bregða sér til Reykhóla og kynnast
vinnubrögðunum.
Viðgerðin er styrkt af Fornminjasjóði,
https://www.minjastofnun.is/sjodir/fornminjasjodur/styrkuthlutanir/2021/
Sjá myndir í myndaalbúmi : http://www.batasmidi.is/photoalbums/294794/
16.04.2021 10:12
Tjaldur BA - Viðgerð

Tjaldur
BA68, skipaskrárnúmer 5668, var smíðaður árið 1955 af Bátasmíðastöð
Breiðfirðinga, sem varð að Bátalóni hf., árið 1956.
Báturinn er súðbyrðingur með innfelldu stefni. Skráð lengd er 9,45 metrar og brl.; 7,7
Eigandi Tjalds er Ingvi Óskar Bjarnason, Arnórsstöðum-Neðri á Barðasrrönd og hefur hann gert hann út sem krókaaflamarksbát frá Brjánslæk frá 1980.
Báturinn hét upphaflega Sigursæll RE 219 í Reykjavík en verður 1967 Sigursæll BA 219 á Reykhólum, 1969 Sigursæll ÁR 47 í Þorlákshöfn, 1975 Sigursæll ÁR 47 í Reykjavík, 1976 Sigursæll ÁR 47 á Selfossi, 1977 Fengur RE51 í Reykjavík, 1979 Guðný HF 68 og frá 1980 Tjaldur BA 68.
Viðgerð á bátnum var framkvæmd 2020-2021 af Hafliða Aðalsteinssyni skipasmíðameistara og formanni Bátasafns Breiðafjarðar, ásamt Eggerti Björnssyni bátsmið og Einari Jóhanni Lárussyni skipsmíðanema.
Báturinn var fluttur til Reykjavíkur í lok árs 2020 og töluvert þurfti að hafa fyrir því að koma honum inn í hús, settir voru s.k. skautar undir bátinn og hann dreginn inn með bíl og einnig spilaður með trissum. Vinna við viðgerðina hófst svo í byrjun desember 2020 og lauk henni í lok mars 2021.
Eftirfarandi var framkvæmt.
Skipt var um meginhluta botns og síðum bátsins og fóru um 80 metrar af byrðingsborðum í það. Það lætur nærri að vera um 35% af byrðingnum. Sett í 7 ný bönd og 6 ný botnbönd (Bunkastokkar) Vélin var tekin úr og undirstöðu hennar lagfærðar. Smíðað var nýtt gólf í vélarrúm. Skipt um þilfar umhverfis stýrishús. Gert var við klæðningu á stýrishúsi. Vél sett niður og frágengin. Báturinn var síðan bikaður og málaður og málaður að hluta.
Myndir í myndaalbúmi.
http://www.batasmidi.is/photoalbums/294578/
28.03.2021 10:20
Styrkur frá Fornminjasjóði 2021
Súðbyrðingurinn
Sindri endurbættur.
Hafliði Aðalsteinsson og Guðmundur Theódórsson á Sindra 2015
Okkur er ánægja að geta sagt frá að
við úthlutun úr Formninjasjóði þann 25. mars 2021, var FÁBBR veittur styrkur, að
upphæð 2.000.000 kr. til að framkvæma endurbætur á Sindra sem er rúmlega 7
metra langur súðbyrðingur smíðaður árið 1936 í Hvallátrum á Breiðafirði.
Svona styrkur er ómetanlegur stuðningur við okkar starf við að vernda Breiðfirska bátaarfinn og kunnum Fornminjasjóði og
Minjastofnun bestu þakkir fyrir.
Ráðgert er að vinna að viðgerðinni í
Báta- og hlunnindasýningunni á Reykhólum
sumarið 2021 og mun Hafliði Aðalsteinsson skipasmíðameistari, formaður
FÁBBR, stýra framkvæmd hennar.
Hér er um að ræða upplagt
tækifæri til að heimsækja Reykhóla og sjá handverk breiðfirskra skipasmiða á lifandi
safni.
Við munum auglýsa betur hvenær
unnið verður að viðgerðunum þegar nær dregur.
Hér að neðan eru krækjur á ýmsan fróðleik.
Fornminjasjóður 2021: https://www.minjastofnun.is/sjodir/fornminjasjodur/styrkuthlutanir/2021/
Fróðleikur um Sindra. http://batasmidi.is/blog/2015/09/29/737118/
Myndir af Sindra: http://batasmidi.is/photoalbums/274830/
Bátasafn Breiðafjarðar: http://www.reykholar.is/stjornsysla/stofnanir/Batasafn_Breidafjardar/
Heiðursiðnaðarmenn 2020: http://batasmidi.is/blog/yearmonth/2020/04/